Veira

Þetta á ekki við nein rök að styðjast. Loftskifti í flugvélum er mjög hratt og það er lítill möguleiki á að smitast jafnvel af venjulegri kvefpest um borð í flugvélum vegna þessara loftskifta.


mbl.is Svona dreifist veiran um flugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reiðhjólamenning

Myndin sem fylgir þessari grein er dæmigerð fyrir kapphjólreiðafólk. Yfirtaka alla stíga og ekki bara göngustíga heldur líka reiðhjólastíga vegna ofsahraða í keppnisreiðhjólamennsku. Sjálfur hjóla ég og er verulega hræddur við þetta fólk sem fer um á 45-70km hraða, notar ekki bjöllur sennilega vegna þess að þær þyngja hjólin um 50 grömm og svo gætu þessir kappar tapað einbeitingunni ef verið væri að bjalla á alla sem eru nálægt. Það er mun öruggara að vera á húsagötum þar sem að bílstjórar eru með aðgát við reiðhjólafólk sem ekki er á reiðhjóla- og göngustígum. Það ætti að vera skilda að láta öll hjól fara frá söluaðila með bjöllu.


mbl.is Hjólastígur frá Lækjargötu út í Nauthólsvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blaðamenn MBL

Hverslags blaðamenn eru á MBL að þýða vitleysu Trump á þennan hátt:" Látið fjölmiðla um að taka forsetann af ábyrgð úr samhengi og sníða neikvæðarfyrirsagnir" Þar ekki að taka Google Translate úr sambandi á MBL? eða eru fréttamenn svona daprir í enskri tungu að geta ekki gert betur?


mbl.is Hvíta húsið gagnrýnir fjölmiðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

WHO

Hvernig væri að bjóða WHO og UN aðstöðu fyrir höfuðstöðvar á Íslandi? Hér er gott að vera, mögulegt að breyta höfuðstöðvum þ.e. byggingu Landsbankans í byggingu Sameinuðu þjóðanna. Það er augljóst að stofnun sem þessi á ekki að vera innan USA


mbl.is Gætu aldrei aftur veitt WHO fjármagn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðmundur Franklín

Þessi maður hefur engan skilning á Íslensku samfélagi. Forsetinn gerir ekkert af því sem GFJ ælar sér að gera sem forseti. Það er verk Alþingis að fást um efnahaginn og gera aðgerðar áætlanir. Landsvirkjun borgar arð til Ríkisins. Við höfum góðan forseta hann Guðna og hann fer með sigur upp á 99,99% í kosningum. Þetta verður bara kostnaður fyrir þjóð sem þarf á öllu sínu að halda öðrun fávisku.


mbl.is Guðmundur Franklín gefur kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æfa sund

Starfsmenn Sundlaugar Kópavogs hafa verið að synda þar til að viðhalda sundkunnáttu. Geta þeir ekki boðið einum og einum með sér. 


mbl.is Æfir í uppblásinni sundlaug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víðir

Hversvegna ekki að anda rólega. Það er eflaust mikið álag á Víði eins og marga aðra í þessu teimi fjölmiðlafunda. Ég er ekki viss en ég held að Víði hafi aldrei vantað. Þrefalt HÚRRA fyrir ÞÍEYKINU.


mbl.is Víðir: „Mistök af minni hálfu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn þá Sklúavá?

Það er ekki rétt að WOW og Skúli hafi skapað gríðalegar tekjur fyrir þjóðarbúið. Það skildi eftir sig hyldýpi skulda sem aldrei verður komist yfir úr því sem komið er vegna COVID. En Skúli kemst alltaf að hjá MBL með bullið um þjóðhagslega nauðsynlegt fyrirtæki sitt. Sem betur fer fór það á hausinn áður en að þessi veira skall á okkur og heiminn. Skuldastaða WOW hefði bara versnað og það hefði dregið þjóðarbúið inn í verri stöðu en staða er þó núna.


mbl.is Ferðaþjónustan muni vaxa og dafna að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icelandair þýðir Icelandair

Það er aðdáunarvert að heyra hvað Icelandair er sterkt og ábyrgt félag gagnvart Íslensku þjóðinni. Þetta er síðasta félagið sem aldrei hverfur af hólmi sem áætlunarfélag til og frá Keflavík og þjóð á að standa með félaginu og starfsmönnum þess. Við þurfum Icelandair. 


mbl.is „Ekki búin að átta okkur á því hvað þetta þýðir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Freysteinn Guðmundur Jónsson

Höfundur

Freysteinn Guðmundur Jónsson
Freysteinn Guðmundur Jónsson
Íslenskur Jarðarbúi.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband